KVIKMYNDAVERÐLAUN

Skoðið þessi myndbönd og reynið síðan að giska á það hvaða mynd, leikstjóri og leikarar fái Óskars verðlaunin! Þið fáið verkefnablaðið frá mér, skilið því fyrir Óskarsverðlaunahátíðina (núna á sunnudaginn 4. mars) og sá sem giskar best fær utanlandsferð í verðlaun (aðra leið).

Sigurvegarar á Óskarsverðlaunahátíðinni hjá okkur voru: 

Tinna Eyvindardóttir og Védís Halla Víðisdóttir 1fþ, sem báðar voru með 10 rétta. Þær svindluðu ekki neitt, en horfðu á útsendinguna um nóttina. Þær giskuðu s.s. á allt rétt! Þær fá verðlaun: ferð til útlanda, til Timbaktú, aðra leið.

Öruggur í öðru sæti var hinn ástsæli kennari með 7 rétta, þar á meðal mynd, leikstjóri og karlleikari í aukahlutverki úr mynd okkar: The Shape of Water.